Skilmálar

Greiðslufyrirkomulag

Tekið er á móti greiðslum með kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að HREINSIEFNI.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Einnig er hægt að borga með því að millifæra í gegnum banka/heimabanka.

Afgreiðsla á vörum

Eftir að viðskiptavinurinn hefur gert og gengið frá pöntun á hreinsiefni.is fær  viðkomandi og hreinsiefni.is staðfestingu um pöntun á pósti. Venjulegur afhendingarferill á sendum pöntunum er 1-2 virkir dagar. Öllum pöntunum er dreift af Drop eða Flytjanda og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Flytjanda / Drop um vöruna. Concepts ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem má verða á vöru í flutningi.

Vöruskil

Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og hægt er að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að vara sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Ef ske kynni að vara sé gölluð greiðir HREINSIEFNI.is sendingarkostnaðurinn sem fellur til við skil á vöru en annars er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvörum er ekki hægt að skila.

Persónuupplýsingar

HREINSIEFNI.is afhendir hvorki persónuupplýsingar né netföng á þriðja aðila. Þau netföng sem skráð eru á póstlista hreinsiefni.is eru eingöngu notuð til að senda notendum upplýsingar um tilboð og upplýsingar um vörur og/eða viðburði. Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar og verð á vefnum eru birt með fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og myndatöku.

Almennt um netverslunina

Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Hreinsiefni.is er rekið af Concepts ehf, kt. 680122-0830 og er hægt að hafa samband í gegnum hreinsiefni@hreinsiefni.is eða síma: 779-5700